8034 daga gömul...

Jebbs, þá er maður orðinn eldri... nánar tiltekið 264 mánaða gömul Tounge

Í tilefni þess  ákvað ég að skrifa smá hérna og láta vita að ég er á lífi.. rétt tóri :p

Allt og gott fyrir utan einhverja flensu sem mér hefur tekist að næla mér í... ég virðist vera góð í því svona í krginum afmælið mitt og áramótin... En ég vona að mér takist að hrista þetta af mér ef ekki fyrir morgundaginn þá allavega fyrir sunnudaginn, þýðir ekki að kveðja gamla árið lasinn Undecided

Jæja, ekki búin að ákveða hvernig ég ætla að halda upp á daginn, eitthvað hefur verið talað um að fara út að borða.. spurning hvort maður eigi að vera að halda eitthvað kaffiboð Errm

Kemur í ljós á morgun. 

 

Hvað vil ég fá í afmælisgjöf?
-Bara eitthvað fallegt Wink

 

Já og gleðilegt nýtt ár!  


Dagurinn í dag...

Lag dagsins:

I'd swim across lake Michigan
I'd sell my shoes
I'd give my body to be back again
In the rest of the room

To be alone with you
To be alone with you
To be alone with you
To be alone with you 

To Be Alone With You - Sufjan Stevens 

Jebbs. Dagar sem byrja á Sufjan Stevens söngli, góðu kúri og svo góðri sturtu eru góðir dagar.
Ég vissi það áður en ég sá sólina úti.. og svanina sem flutu á sjónum (Tilvinljun að ég skyldi vakna með lag af plötunni Seven Swans.... ) 

Ég finn á mér að þetta muni vera góður dagur, nóg að gera í vinnunni og sólin skín á skjáin svo ég sé ekkert..  

Dagurinn í dag er röndóttur dagur.. 

Nýr LOST þáttur í kvöld.. og OTH.. Nýr Grey´s Anatomy þáttur á morgun, sem þýðir að ég á þá tvo þætti til að horfa á Hlæjandi
-Harpa þú lætur mig bara vita hvenær ég á að koma með þá til þín Glottandi

Komi tími til að fara að vinna.
Góður dagur, Jebbs!


Stefnir í met... ?

Jáh gott fólk, það stefnir í met.

Önnur færslan í dag.. því sko annaðhvort tekur maður þetta með trompi eða bara sleppir þessu :p

Sæti lubbiSjáiði bara lubbann.. sætastur :D

Það er að myndast ákveðið þema hérna... skemmtilegt :p

En nú er bara spurningin.. OTH eða DH..
OTH kemur sterkt inn... enda hann orðinn eldri.. þ.e. lengra síðan hann var sýndur... já, ég held það bara. 

Og svona í lokin.. ef einhverjum vantar að losna við góðan frekar nýlegan bíl.. eða íbúð eða tja.. eina til tvær milljónir þá eeeendilega hafið samband Hlæjandi Hefði ekkert á móti einhverju af  þessu... eða bara öllu :p

hmm haa, jæja, OTH kallar.. góða nótt! 

Annars var þetta tilgangslaus og samhengislaus færsla. Glatað! 


dúmmdídúmm

Voru ekki allir ánægðir með síðustu færslu? Ullandi

Ekkert að gera í vinnunni...  ekkert til að glápa á (ekki að ég geri þannig í vinnunni - uss!Tala af sér)

Langar bara að gera eitthvað annað en að sitja og gera ekkert.. en svona er þetta bara.. þriðjudagar eru rólegir dagar Óákveðinn

Hmm.. eitthvað í fréttum... Held ekki.
Var spurð í gær hvenær ég ætlaði að gifta mig, bara svo það sé á hreinu þá er það ekki að fara að gerast á næstunni. Amma mín hefur bara það hlutverk að koma manni á óvart með skrítnum spurningum.. Fólk er líka að reyna að fá mann til að kaupa station bíl og barnavagn, það er ekki á dagskrá á næstunni heldur.  Best að gera þetta í réttri röð sko.. skulum byrja á að koma okkur út af Hótel Mömmu og svona og svo í framtíðinni má fara að íhuga hitt.. ég er ekki orðin það stór!

Skírn á sunnudaginn.. spennandi að vita hvað sætasti frændinn minn á að heita... Ég er viss um að ef hann væri stelpa myndi hann heita Guðný.. Glottandi ...Eða kannski ekki. 

sæti

 En ég held það sé alveg á hreinu hver er sætastur Svalur

 

Og nú er komið nóg af bulli... yfir og út! 


Og hana nú...

Núna rétt áðan..  

hip chick says: það er ekki hægt að kommenta á bloggið þitt 
Guðný says: afhverju ættiru að vilja það ? 
hip chick says:
nei ætlaði það fyrir löngu átti bara alltaf eftir að segja þér það
                         ég heimta líka hér með nýtt blogg
Guðný says:
iss piss blogg smogg  
hip chick says: já og hana nú

Og hér er hani..

rooster

 

Annars ekkert merkilegt að frétta.

 

Þessi blggfærsla (ef svo má kalla) er tileinkuð HipChick Glottandi


Komin heim

Prins Sigurðsson

Jæja, þá er maður kominn heim. 

Það helsta sem hefur gerst er að lítill prins ákvað að kíkja á heiminn 26. ágúst eftir 2ja vikna bið.
Ég á enn eftir að hitta hann en er búin að fara nokkrar umferðir yfir myndirnar á barnalands-síðunni, algjört krútt. Hefur svipi bæði frá mömmu sinni og pabba, allavega lubbann frá pabbanum. Hægt að skoða myndir af prinsinum á heimasíðunni hans. Látið mig bara vita ef ykkur vantar lykilorðið til að skoða myndirnar. Glottandi

En ferðin heppnaðist vel.. einkenndist mest af því að liggja í leti í sólinni og rölta um og borða og sofa.. allt voða gott. Skrifa kannski ferðasögu seinna ef ég nenni. Ekkert svakalegt sem kom upp á, smá bruni og magaverkur en ekkert alvarlegt. Komumst allavega heim heil og brún. Svalur

Læt þetta duga í bili. Bara aðallega að láta vita af mér og monta mig aðeins. 


Fleiri myndir

Það fer að koma að því...

...að við hoppum til Búlgaríu í sólina í tvær vikur Hlæjandi Það verður nú gott og gaman!

Fyrsti dagur í sumarfríi í dag.. það er gott að komast loksins  í sumarfrí..  aðeins 3 vikur framundan í sumarfríi, þær verða ljúfar!




Mánuður síðan ég skrifaði hérna síðast.. síðan þá hefur nú ýmislegt gertst, þetta er það helsta:

  • úff.. erfitt að rifja þetta allt saman upp, allavega ekki enn búin að sjá Superman.. ætli það gerist nokkuð fyrr en hún kemur á vidjó?

  • Ég og Binni skelltum okkur í útilegu helgina 22.07-23.07. Fórum á Laugarvatn og sigldum um vatnið á árabát, kíktum svo í gufubaðið og sterkari helmingurinn synti í Laugarvatni, hinn helmingurinn (ég) lét heitu pottana duga.
    Eftir sundið ákváðum við að keyra aðeins áfram og kíktum í Miðdal, þar var allt stappað af fólki og við nenntum ekki að hola okkur niður á milli einhverra hópa.. við tvö með litla kúlutjalið okkar :p Þannig að við keyrðum aðeins lengra áfram og enduðum á tjaldstæðinu Úthlíð, þar var fámennt en góðmennt. Ball með Johnny King á kránni á laugardeginum.. en við vorum nísk og vildum ekki borga 1000 kr. á mann til að komast inn að hlusta á einhvern dúdd sem enginn vissi hver var. Á sunnudeginum þegar við vöknuðum var komin þessi bongó-blíða þannig að við skelltum king-size vindsænginni út og lágum í sólinni í nokkra klukkutíma... orðin vel rjóð af sólinni ákváðum við að pakka tjaldinu saman og kveðja Úthlíð og sólina þar.
    Þaðan lá leiðin að kíkja á Gullfoss og Geysi ásamt öllum túristunum og Sniglunum. Á heimleiðinni stoppuðum við svo í Hveragerði og skelltum okkur í sund.. Eftir góða en stutta sundferð brunuðum við í bæin, vel sólbrennd en sæl. Myndir úr ferðinni má finna hér.

  • Tónleikar Sigurrósar á Klambratúni voru flottir.. ekki mín tegund af tónlist, en flottir tónleikar.
    Mættum seint og fórum snemma.. en náðum svo klukkutíma.

  • Verslunarmannahelginni var eytt í bænum. Fórum við matarboð/partý hjá Óla & Unni. Það var mjög fínt, góður matur og spilað Actionary. Kíktum svo í bæin en stungum af fljótlega, enda ekkert merkilegt að gerast þar og við notuðum tækifærið á meðan Harpa var eitthvað að rúnta um í bænum og fengum hana til að skutla okkur heim. Glottandi
    Á sunnudeginum kom svo hún Birta í pössun til okkar. Hún var voða þæg en mikið fyrir að troða sér á skrítna staða eins og undir rúm og bakvið sófa. Skrítið að hafa svona annan hund inn á heimilinu.. en allt gekk vel og ég skilaði henni heim til sín á mánudeginum. 

Jámm.. þetta er nú svona það helsta, sem ég man allavega núna. Ýmislegt annað verið brallað svosem.. t.d. er ég núna búin að horfa á báðar seríur af Grey´s Anatomy á tvem vikum og bíð spennt eftir næstu seríu. Já ég veit... "Halló, ég heiti Guðný og ég er media-junky" Ullandi En ég segi bara að Meredith og McDreamy séu meant to be.. eða hvað ?

En eins og áður sagði er ég nú loksins komin í sumarfrí! Jibbý! Næstu 2 dögum verður eitt í að græja og gera allt áður en lagt verður af stað í tveggja vikna frí í sólinna í Búlgaríu. Ein orðin soldið spennt. Þarf náttla líka að hitta Hörpu sem kemur heim á morgun frá DK þar sem hún er væntanlega búin að ganga upp fyrir hné og versla frá sér allt vit ásamt mömmu sinni og systir.

En þangað til næst.. bon voyage. Svalur

 

Myndir af Birtu, Sigurrós og öðru hér. 

Ps. styttis í Sigga-son (ég er bara að giska, veit ekki kynið) Getið fylgst með hérna.

P.p.s. Vissuð þið að H&M á íslandi er hætt! Bara komnar einhverjar sænskar vörur í staðin.. skrítið! 


Nýjir tímar

Jæja, þá er öðrum vinnudegi í hinu nýja Morgunblaðshúsi í Hádegismóum senn að ljúka. Húsnæðið er mjög fínt en ýmislegt sem þarf að venjast. Eins og gengur og gerist á nýjum stöðum.

Það helsta er sennilega lætin, iðnaðarmenn og allt fólkið í þessu opna rými, getur verið svolítið yfirþyrmandi. Málningar- og límlyktin er heldur ekki að fara vel í fólkið. En það stendur vonandi til bóta þegar þessir iðnaðarmenn hverfa á brott. Ég gef því svona tvær vikur, allavega... gætu jafnvel verið hérna fram á haust Hissa

En annars er allt gott í fréttum. Nýafstaðinni helgi var eytt í góðu yfirlæti í Skaftafelli þar sem við fengum okkur göngutúr meðfram Svínafellsjökli í ausandi rigningu á meðan sólin skein sínu skærasta hér í höfuðborginni. Síðan vorum við svo heppin að fá að skreppa í flugtúr yfir Jökulsárlón og Ingólfhöfða og svona, voða gaman Hlæjandi Mæli með því. Stefni að því að setja inn nokkrar myndir frá því um helgina bráðlega.

Næstu helgi verður eytt í bænum, B er að fara í brúðkaup á laugardaginn og ég að vinna. En það er svo sem nóg að gera í bænum. Gæti verið gaman að kíkja í fyrirhugað innflutningspartý hér í móanum ásamt því að kíkja í kvikmyndahús bæjarins og sjá Superman. Myndin er að fá góða dóma og ég hef alltaf haft gaman af Clark Kent og félögum. Föstudagar voru heilagir á meðan Lois & Clark var í sjónavarpinu á Stöð 2. Væri alveg til í að horfa á þá aftur við tækifæri. Svalur


En þetta er komið gott í bili, ætla að fara að koma mér aðeins betur fyrir eða fara smá njósnatúr um húsið, á eftir að skoða efri hæðina betur ;)


jæja...

Þá er komið að jæja færslu nr.2 

Og lífið er gott Brosandi Ég get allavega ekki kvartað.

Parents eru farin austur í sveitina og við því bara 2-4,5 í kotinu núna, í staðin fyrir 5-7,5 venjulega... Ágætt að hafa pleisið fyrir sig, en svo verður líka gott þegar þau koma aftur heim Hlæjandi


Annars hef ég ekki mikið að segja svosem...

...bíllinn kominn í lag, nú er bara að mál að huga að því að selja hann, vantar einhverjum bíl ? *wink*wink´*

...moggaflutningar í fullum gangi.. stefnt að því að mín deild flytji eftir viku...

...viku-sumarfrí framundan, það verður næs

...síðan vinna í  5 vikur og svo er komið að búlgaríuferðinni miklu ;) (Sem gera 6 vikur ca.)

 

Ekki meira að segja núna.

Eitt að lokum, Flickr er sniðugt


Jæja...

Hvern þarf ég að tala við svo það hætti að rigna svona?

...ekkert nýtt í fréttum. Lífið gengur sinn vanagang... vinna sofa og borða.. og svo eitt og annað brallað inn á milli.

...ekkkert orðið af útilegum síðustu tvær helgar... enda ekki skemmtilegasta veðrið til þess að veltast um í tjaldi.  En ég panta gott veður næstu tvær helgar...

...styttist óðum í smá sumarfrí... fyrstu vikuna í júlí... svo styttist líka í aðalfríið...

 jamm.. eins og ég sagði.. ekki mikið í gangi. Þreytt. Bílinn lekur bensíni. Rigning. Vinna á morgun. 

Jám, lífið er gott! Óákveðinn


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband