Færsluflokkur: Ferðalög

Páskar - Nýjar myndir og ferðasaga

Köttur og egg

Ég kann vel við að vera í fríi. 

Páskafríið í ár hefur verið mjög gott...

Fór í nokkra daga austur í Skaftafell með familíunni (mínus þá sem urðu eftir heima til þess að læra) ...
Alltaf gott að vera í Skaftafelli, mikið borðað og mikið sofið. 

Það sem stóð þó upp úr var ferð niðrá strönd, eða Skaftafellsfjöru á slóðir gullgrafara. Mjög gaman að sjá sjóin, fjöruna og allt dótið þar í kring. Búin að setja myndir frá ferðinni.. getið séð þær með því að ýta hér eða velja Myndaalbúm hér til hliðar. Setti einnig inn fleiri myndir frá helginni, getið farið sömu leið að þeim.  Brosandi

Komum heim frá Skaftafelli á laugardaginn, helgin hálfnuð.
Eftir var sjálfur páskadagurinn með tilheyrandi páskaeggjaáti. Kötlu þótti páskaeggið forvitnilegt en hafði þó mest gaman af páskaunganum sjálfum. 

En nú fer þessari helgi að vera lokið og það sama má segja um þessa færslu.  Ferðasöguna verðið þið bara að fá úr myndunum, myndir segja jú meira en þúsund orð. Glottandi Framundan er matarboð hjá ömmu og svo hefst átak. Ekki satt? Ullandi


Hef heimsótt..

Jebb, ég hef aðeins heimsótt 2% af heiminum... ekki er það nú stór tala, en hún á vonandi eftir að stækka.



Hvað með þig?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband